Gerð:

Bernyl Barrier er tvíþátta sýruhertur lakkgrunnur, sem gefur mjög góða fyllingu.
Notkunarsvið:
Bernyl Barrier hentar vel á húsgögn og innréttingar. Hann notast á ljósar viðartegundir.
Eiginleikar:
Bernyl Barrier er mjög hraðþornandi og er léttur í slípun. Bernyl Barrier heftir harpísblæðingar og inniheldur ljóssíu. ÁN ARÓMATA.
Lökkun:
Bernyl Barrier er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu, lakkteppavél, lakkvals eða dýfingu. Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.
Herðir:
Í Bernyl Barrier skal blanda Bernyl Herði 309, 5 % í rúmmáli.
Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 309. Flæðiseigja skal vera 25-30 sek.
Notatími:
Minna enn 3 dagar eftir íblöndun herðis nema við dýfingu þá er notatími u.þ.b. vika.
Hreinsun áhalda:
Með Bernylþynni 31 eða 309.
Annað:
Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal eftir fyrstu umferð til að fjarlægja hugsanlega ýfingu viðarins og til að tryggja örugga viðloðun við næstu umferð.
Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi. Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.