Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
Care Global 80
Lýsing
Gerð:
Care Global er hyljandi, tvíþátta, sýruhert lakk, sem gefur góða fyllingu.

   
       



     Notkunarsvið:

Care Global hentar vel á húsgögn og innréttingar.

Eiginleikar: 

Care Global er mjög hraðþornandi og er létt í slípun.  Lakkið myndar rispuþolna og áferðarfallega filmu. Care Global gefur lítið formaldehyð frá sér hvort heldur er við lökkun eða hörðnun.  UPPFYLLIR E1 KRÖFUR.
 


Leiðbeiningar
Lökkun:
Care Global er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél. Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.

Herðir:
Í Care Global skal blanda Bernyl Herði 309, 12,0 % í rúmmáli. 

Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 309.  Flæðiseigja skal vera 17-25 sek fyrir loftsprautu, 35-40 sek fyrir háþrýstisprautu og 40-60 sek fyrir lakkteppavél.

Notatími:
 
Minni enn 1 til 2 dagar eftir íblöndun herðis.

Hreinsun áhalda:

Með Bernylþynni 31 eða 309.

Annað: 

Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal flötinn sama dag og hann er lakkaður til að tryggja bestu mögulegu viðloðun.  Mikilvægt er að hræra vel saman fyrir notkun og eftir blöndun við herði og þynni. 



Eðliseiginleikar
Þurrktími:
Loftþornun við 20°C, 16-20 klst. 
Hröðuð þornun við 35-40°C, 1-2 klst.

Hitastig má ekki vera yfir 30°C við stöflun. Uppgefinn tími er leiðbeinandi og háður aðstæðum hverju sinni.



Þykkt (flæðiseigja):
Um 150-160 sek. (DIN 4 við 20°C).

Eðlismassi:
1,24 g/ml (25°C).  Skv. SIS staðli. 

Þurrefni:
Um 68 % af massa.

Efnisnotkun:

100 - 150 g/m2.

Gljái:

Um 80. Skv. Gardner 60°.


Hitastig við notkun:
Bæði lakkið, flötur og loft verða að vera yfir 18°C.

Geymsluþol:

Um 12 mánuðir í óátekinni umbúð.


 
 

Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi.  Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.

Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000