Gerð:
KJÖRVARI 20 er vatnsþynnanleg, hyljandi viðarvörn, sem ver viðinn niðurbroti af völdum sólarljóss. KJÖRVARI 20 er gerður úr ljósheldum litarefnum, öflugum fúa- og rotvarnarefnum, blöndu af feitu alkýði og 100% akrýlemúlsjón, sem gefur teygjanlega filmu, án þess að viðarmynstur glatist. KJÖRVARI 20 hefur frábært vatns- og veðrunarþol og hleypir raka úr viðnum auðveldlega gegnum sig.
Notkunarsvið:
KJÖRVARI 20 er ætlaður á hvers konar við utanhúss. Langbest viðarvörn fæst, ef viðurinn er málaður algjörlega óveðraður. Jafnan skal grunna viðinn með glærum KJÖRVARA 14 og mála svo tvær umferðir með KJÖRVARA 20.
Litir:
KJÖRVARI 20 er framleiddur í nokkrum STAÐALLITUM og að auki er boðið upp á mikinn fjölda lita með litun á stofnum.
Áferð:
Hálfgljáandi.
Málun:
Með pensli, rúllu eða sprautu.
Varúðarflokkur:
0 - 1.
Þynnir:
Vatn, ef þörf krefur, hámark 10%.
Hreinsun áhalda:
Með vægu sápuvatni, strax eftir notkun.
Þurrktími:
Um 1 klst. við 20°C.
Yfirmálun:
Eftir 5-7 klst.
Þykkt (flæðiseigja):
Um 80 KU (25°C).
Eðlismassi:
Um 1,05 g/ml (25°C), breytilegt eftir lit.
Þurrefni:
Um 45 - 50% af massa eða um 39 - 44% af rúmmáli (reiknað). Fer eftir litum.
Efnisnotkun:
Um 0,10-0,20 l/m2 í umferð á óheflaðan við, samsvarar um 39-75 µm meðalþurrfilmuþykkt. Um 0,07-0,10 l/m2 í umferð á heflaðan við, samsvarar um 27-39 µm meðalþurrfilmuþykkt.
Hitastig við málun:
Minnst 5°C við flötinn.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.