Gerð:
KRAFTLAKK er fljótþornandi alkýðbundið lakk, sem er létt í notkun,
flýtur vel og myndar sterka og varanlega gljáandi lakkfilmu.
KRAFTLAKK hefur gott veðrunar- og slitþol og er auðvelt að halda því hreinu.
Notkunarsvið:
KRAFTLAKK er einkum ætlað á hvers konar vinnuvélar eða almennt
á málmfleti innanhúss þar sem gljáandi áferðar er óskað.
Málun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu.
Varúðarflokkur:
2 - 1 til 2 - 3, breytilegt eftir lit.
Þynnir og hreinsun áhalda:
GEISLASELLULÓSAÞYNNIR fyrir sprautu, MÍNERALTERPENTÍNA fyrir pensil og hreinsun áhalda.
Þurrktími:
Snertiþurrt eftir um 2-4 klst. við 20°C.
Yfirmálun:
Eftir 6-10 klst., breytilegt eftir aðstæðum.
Þykkt (flæðiseigja):
Um 70 KU (25°C).
Gljái:
Um 90 (60°).
Eðlismassi:
Um 1,10 g/ml (25°C), breytilegt eftir lit.
Þurrefni:
Um 60% af massa eða um 45% af rúmmáli (reiknað), breytilegt eftir litum.
Efnisnotkun:
Um 0,08-0,10 l/m² í umferð, breytilegt eftir hrjúfleika flatar, málunaraðferð og aðstæðum. Samsvarar um 40µm þurrfilmuþykkt.
Lágmarks vinnsluhitastig
Flöturinn sem mála á skal vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins, meðan á málun og þornun málningar stendur.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.
Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/d
400 g/l (2007)/300 g/l (2010). Þessi vara innheldur að hámarki 400 g/l.