Undirbúningur:
Fitu, olíu, sölt og önnur óhreinindi skal fjarlægja með Kraft Tjöruhreinsi, háþrýstum vatnsþvotti eða á annan fullnægjandi hátt. Gljáandi fleti er æskilegt að matta t.d. með slípun eða léttum sandblæstri. Fyrir málun skal flöturinn vera hreinn og þurr.