Undirbúningur:
Fitu og olíu skal hreinsa vandlega með Kraft Tjöruhreinsi eða samsv. Sölt og önnur óhreinindi skal fjarlægja með háþrýstiþvotti eða á annan fullnægjandi máta. Vírbursta skal ryðgaða fleti helst með vélknúnum bursta að lágmarki samkv. St 2-3. Mikið tærð svæði er æskilegt að sandblása í Sa 2,5 og bletta með Barrier.