Vörur
Showing 1–9 of 133 results
Steinskjól
STEINSKJÓL er vatnsþynnanleg akrýlmálning sem má mála með allt niður að 0°C. STEINSKJÓL hefur gott veðrunar- og teygjuþol, sem gefur möguleika á að brúa fíngerðar sprungur. STEINSKJÓL er sérlega hönnuð fyrir múr og stein-steypu utanhúss.
Sjá vörulýsingu: STEINSKJÓL
Steingrunnur
STEINGRUNNUR er vatnsþynnanlegur bindigrunnur gerður úr sérstöku akrýlbindiefni, sem smýgur vel og bindur laust yfirborð. Er einkum ætlaður til að grunna múr og steinsteypu utanhúss undir STEINTEX eða STEINSKJÓL þar sem nokkur duftsmitun er til staðar.
Sjá vörulýsingu: STEINGRUNNUR
Steinvari 2000
STEINVARI 2000 er terpentínuþynnanleg akrýlbundin málning, sem hefur þá einstöku eiginleika að vera þétt gegn vatni í fljótandi ástandi, en hleypa raka í loftkenndu ástandi vel í gegnum sig eða um tvöfalt betur en hefðbundin plastmálning. STEINVARI 2000 fullnægir ítrustu kröfum um yfirborðsmeðhöndlun á múr og steinsteyptum flötum utanhúss þar sem hann er gæddur eftirtöldum sérkostum.
Sjá vörulýsingu: STEINVARI 2000
Sjá öryggisblað: STEINVARI 2000
Steintex
STEINTEX er emúlsjónsmálning gerð úr ósápanlegu akrýlbindiefni og lútarþolnum litar og fylliefnum. STEINTEX hefur sérstaka eiginleika til að hleypa raka auðveldlega í gegnum sig. STEINTEX er einkum hönnuð fyrir múr og steinsteypta fleti, þar sem krafist er lútarþols, mikils veðrunarþols og rakagegnstreymis.
Sjá vörulýsingu: STEINTEX
STEINAKRÝL
STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg akrýlmálning, sem þornar eingöngu við uppgufun leysiefna. STEINAKRÝL er sérstaklega hannað til notkunar á múr og steinsteypta fleti utanhúss við íslenskar aðstæður. STEINAKRÝL er mjög veðurheldið, hefur frábært alkalíþol og viðloðun við stein, er ágætlega þétt gegn vatni (slagregni) en hleypir þó auðveldlegaí gegnum sig raka úr steinveggjum.
Sjá vörulýsingu: STEINAKRÝL
Sjá öryggisblað: STEINAKRYL
Steinþykkni
STEINÞYKKNI er einþátta, vatnsþynnanleg akrýlmálning, sem myndar mjög teygjanlega filmu, jafnvel við lágt hitastig. STEINÞYKKNI er einkum ætlað á vatnsbretti, ofan á veggi og fleiri slíka lárétta og lítið hallandi steinfleti, til að þétta gegn vatni og brúa fíngerðar sprungur.
Sjá vörulýsingu: STEINÞYKKNI
Kópal Glitra 10
KÓPAL GLITRA er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL GLITRA hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun. KÓPAL GLITRA er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL GLITRA er sérlega hentug á stofur, ganga og svefnherbergi þar sem óskað er hálfmattrar áferðar.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL GLITRA 10
Kópal Perlulakk 40/80
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu. KÓPAL PERLULAKK er ætlað til notkunar innanhúss á glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar eða gljáandi áferðar er óskað.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLULAKK 40:80
Kópal Birta
KÓPL BIRTA er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning, sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eðaformaldehýð. KÓPAL BIRTA hylur sérlega vel og hefur mikla þvottheldni. KÓPAL BIRTA er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL BIRTA er sérlega hentug á ganga, stofur, svefnherbergi o.fl. þar sem óskað er eilítið hærri gljáa en það sem algengast er notað.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL BIRTA 20
-

Sjá öryggisblað: STEINVARI 2000 -

Sjá öryggisblað: STEINAKRYL -

Kópal Flos 40
KÓPAL FLOS er silkimatt vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og lyktarlítið. KÓPAL FLOS myndar filmu, sem hefur mikla þvottheldni, gott veðrunarþol og gulnar ekki. KÓPAL FLOS er ætlað til notkunar innan- og utanhúss, á veggi, glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar áferðar er óskað. Ennfremur á veggi eldhúsa, þvottahúsa og víða í iðnaðarhúsnæði.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL FLOS 40
-
Kópal Matt 4
KÓPAL MATT er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL MATT hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun. KÓPAL MATT er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL MATT er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL MATT 4
-
Kópal Loftamálning
KÓPAL LOFTAMÁLNING er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning, sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL LOFTAMÁLNING hylur sérlega vel og gefur mjög jafna áferð. KÓPAL LOFTAMÁLNING er sérlega gerð til að mála loft innanhúss og hentar einkar vel þar sem birtan gerir miklar kröfur um jafna áferð.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL LOFTAMÁLNING
-
Kópal Akrýlhúð Gljástig 7, 20, 60
KÓPAL AKRÝLHÚÐ er vatnsþynnt akrýlmálning, með mikla þvottheldni og hylur sérlega vel. KÓPAL AKRÝLHÚÐ er gerlavarin, þolir vel rakaálag og hefur mjög góða viðloðun. KÓPAL AKRÝLHÚÐ er einkum ætluð á veggi í frystihúsum, víða í matvælaiðnaði og annarsstaðar þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
-
Kópal Perla
KÓPAL PERLA er þykkfljótandi emúlsjónsmálning gerð úr ósápanlegu akrýlbindiefni, litar- og fylliefnum. KÓPAL PERLA er undirmálning, sem ætluð er til innanhússnotkunar á veggi og loft þar sem óskað er eftir fínmynstraðri áferð „perluáferð“.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLA
-
Kópal Gólflakk 50
KÓPAL GÓLFLAKK er vatnsþynnt akrýlmálning, með gott slitþol. Einni er það lyktarlítið og sérlega auðvelt í vinnslu.
Sjá vörulýsingu: KOPAL GOLFLAKK
-
Blær 30 – Blær 90
BLÆR er fljótþornandi alkýðbundið lakk, sem er afar létt í notkun, flýtur vel og myndar sterka og áferðarfallega filmu. BLÆR er einkum ætlaður til innanhússnotkunar á hurðir, húsgögn, glugga og aðra fleti þar sem hálfgljáandi, 30 eða hágljáandi, 90 lakkáferðar er óskað.
Sjá vörulýsingu: BLÆR 30-90
Sjá öryggisblað: BLÆR 30 – 90 -
Kópal leifturlakk
KÓPAL LEIFTURLAKK er glært, vatnsþynnanlegt, lyktarlaust akrýllakk án mengunar af lífrænum leysiefnum. KÓPAL LEIFTURLAKK flýtur vel og myndar lakkfilmu sem gulnar ekki.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL LEIFTURLAKK
-
Oxýðmenja
Alkýð og olíubundin ryðvarnargrunnmálning með sínkfosfat/járnoxíð ryðvarnarefni. Alhliða ryðvarnargrunnmálning til notkunar beint á járn eða á veðrað sínkhúðað (galvaníserað) járn. OXÝÐMENJA er einkar heppileg á handhreinsað járn þar sem ryð er ekki unnt að fjarlægja að fullu.
Sjá vörulýsingu: OXÝÐMEJNA
-
Vatnsvari 40
VATNSVARI 40 er vatnsfæla, vatnstær lausn af mónósílani, sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík byggingarefni. VATNSVARI 40 binst steininum órjúfanlegum efnatengjum og gerir hann þannig mjög varanlega vatnsfælin, án þess að hafa áhrif á rakaflutning í loftkenndu ástandi og truflar því ekki rakaskipti steinsins við umhverfið.
Sjá vörulýsingu: VATNSVARI 40
Sjá öryggisblað: VATNSVARI 40 -
SAFÍR
SAFÍR er einþátta, hágljáandi pólýúretanlakk sem harðnar fyrir áhrif raka andrúmsloftsins og harðnar því fyrr sem raka- og hitastig er hærra. SAFÍR heldur lit og gljáa mjög vel.
-
KJÖRVARI 114 GAGNSÆR
KJÖRVARI 114 er vatnsþynnt, gagnsæ viðarvörn, gerð úr vatns- þynntum alkýðolíum og ljósheldum litarefnum. KJÖRVARI 114 er þunn-fljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega í gegnum sig.
Sjá vörulýsingu: KJÖRVARI 114
-
Múrgrunnur 03
MÚRGRUNNUR 03 er glær, þunnfljótandi, leysiefnaþynntur grunnur, sem sem smýgur afar vel. MÚRGRUNNUR 03 er einkum ætlaður til að grunna stein undir KÓPAL STEINÞYKKNI. Áburður: MÚRGRUNN 03 má bera á flötinn með pensli, rúllu, eða sprautu.
Sjá vörulýsingu: STEINVARI MÚRGRUNNUR 03