AKRÝLLAKK E03
AKRÝLLAKK E 03 er vatnsþynnt, matt akrýllakk. AKRÝLLAKK E 03 er fremur þunnfljótandi og hentar vel þar sem ekki er óskað eftir mikilli fyllingu á fletinum.
Sjá vörulýsingu: AKRÝLLAKK-E03
Related products
-
KÓPAL 4
KÓPAL 4 er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL 4 hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun. KÓPAL 4 er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
KÓPAL INNIMÁLNING er til með mismunandi glástigum og er viðurkennd umhverfisvæn málning vottuð með Svansmerkinu.
-
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er vatnsþynnt mött akrýlmálning. Málningin inniheldur mygluvarnarefni sem ver málningarfilmuna.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er einkum ætluð til málunar á loftum og veggjum innanhúss. Hentar sérstaklega vel þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar t.d. í eldhúsi, þvottahúsi og í léttum iðnaði.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er létt í notkun hylur vel, hefur einstaklega góða þvottheldni og gefur mjög fallega áferð.
Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Sjá öryggisblað: KÓPAL AKRÝLHÚÐ -
LOFT- OG VEGGMÁLNING
LOFT- OG VEGGMÁLNING er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. LOFT- OG VEGGMÁLNING hefur miðlungs hulu og sæmilega þvottheldni. LOFT- OG VEGGMÁLNING er einkum ætluð á fleti sem minna mæðir á, hvort sem er loft eða veggi. Einnig sem undirmálning undir KÓPAL GLITRU, KÓPAL BIRTU eða KÓPAL FLOS, hvort sem er á steinsteypta fleti, múr, tré eða spónaplötur innanhúss.
Sjá vörulýsingu: LOFT OG VEGGMÁLNING