Morgunblaðið greindi frá því að fyrirtækið hefði fagnað 60 ára afmæli þann 16. janúar 2013. “Fyrirtækið hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldunnar – þótt margir fjárfestar hafi rennt til þess hýru auga í uppsveiflunni. Miklar breytingar hafa átt sér stað í málningariðnaðinum á Íslandi. Um aldamótin voru hér fjórar málningarverksmiðjur en nú er Málning sú eina og notar alfarið eigin uppskriftir við framleiðsluna. Þessu fylgir vitaskuld að starfsmönnum í greininni hefur fækkað eða yfir 100 á umræddu tímabili. Mörg þessara starfa hafa raunar flust til Danmerkur eftir að danska fyrirtækið Flügger yfirtók Hörpu Sjöfn og skipamálningarhluta Slippfélagsins og lagði niður framleiðsluna hér á landi. Í umfjöllun um fyrirtækið á þessum tímamótum í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur meðal annars fram, að Málning er með um 50 starfsmenn sem er álíka mikið og fyrir tíu árum.” Heimild: mbl.is