STEINGRUNNUR
STEINGRUNNUR er vatnsþynnanlegur bindigrunnur gerður úr sérstöku akrýlbindiefni, sem smýgur vel og bindur laust yfirborð. Er einkum ætlaður til að grunna múr og steinsteypu utanhúss undir STEINTEX eða STEINSKJÓL þar sem nokkur duftsmitun er til staðar. Það má einnig nota hann til að grunna undir STEINÞYKKNI.
Sjá vörulýsingu: STEINGRUNNUR
Sjá öryggisblað: STEINGRUNNUR
Related products
-
VATNSVARI V
VATNSVARI V er vatnsþynnanleg vatnsfæla, byggð á sílani, sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík byggingarefni. VATNSVARI V er seldur sem þykkni og er að jafnaði þynntur rétt fyrir notkun.
VATNSVARI V er einfaldur í notkun og minnkar losun á lífrænum leysum samanborið við hefðbundnar vatnsfælur.
Sjá vörulýsingu: VATNSVARI V
Sjá öryggisblað: VATNSVARI V -
STEINSKJÓL
STEINSKJÓL er vatnsþynnanleg akrýlmálning sem má mála með allt niður að 0°C. STEINSKJÓL hefur gott veðrunar- og teygjuþol, sem gefur möguleika á að brúa fíngerðar sprungur. STEINSKJÓL er sérlega hönnuð fyrir múr og stein-steypu utanhúss.
Sjá vörulýsingu: STEINSKJÓL
Sjá öryggisblað: STEINSKJÓL