AKRÝLLAKK 03
AKRÝLLAKK 03 er vatnsþynnt mött akrýllakkmálning.
AKRÝLLAKK 03 er sérlega ætlað á sjónsteypu innanhúss þar sem kröfur eru gerðar til að áferð steinsins haldist sem mest í óbreyttri mynd. Lakkið hentar einnig utandyra eftir meðhöndlun með vatnsfælu.
AKRÝLLAKK 03 er fremur þunnfljótandi og hentar vel þar sem ekki er óskað eftir mikilli fyllingu á fletinum. Varan er samþykkt vara í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).
Sjá vörulýsingu: AKRÝLLAKK 03
Sjá öryggisblað: AKRÝLLAKK 03
Related products
-
KÓPAL 4
KÓPAL 4 er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL 4 hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun. KÓPAL 4 er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
KÓPAL INNIMÁLNING er til með mismunandi glástigum og er viðurkennd umhverfisvæn málning vottuð með Svansmerkinu.
-
KÓPAL PERLULAKK 40/80
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu. KÓPAL PERLULAKK er ætlað til notkunar innanhúss á glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar eða gljáandi áferðar er óskað. Varan er samþykkt vara í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLULAKK 40/80
Sjá öryggisblað: KÓPAL PERLULAKK 40/80 -
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er vatnsþynnt mött akrýlmálning. Málningin inniheldur mygluvarnarefni sem ver málningarfilmuna.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er einkum ætluð til málunar á loftum og veggjum innanhúss. Hentar sérstaklega vel þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar t.d. í eldhúsi, þvottahúsi og í léttum iðnaði.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er létt í notkun hylur vel, hefur einstaklega góða þvottheldni og gefur mjög fallega áferð.
Varan er samþykkt vara í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Sjá öryggisblað: KÓPAL AKRÝLHÚÐ