KJÖRVARI 10
KJÖRVARI 10 er viðarvörn gerð úr vatnsheldum alkýðolíum og öflugum fúa- og rotvarnarefnum. KJÖRVARI 10 er mjög þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega gegnum sig.
Sjá vörulýsingu KJÖRVARI 10
Sjá öryggisblað: KJÖRVARI 10
Related products
-
KJÖRVARI 14
KJÖRVARI 14 er gagnsæ viðarvörn, gerð úr vatnsheldum alkýðolíum, öflugum fúa- og rotvarnarefnum og ljósheldum litarefnum. KJÖRVARI 14 er þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega í gegnum sig. KJÖRVARI 14 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist. Kjörvaraborinn viður hefur ekki áhrif á nærliggjandi gróður og hentar því vel t.d. á tréverk gróðurhúsa.
Sjá vörulýsingu: KJÖRVARI 14
Sjá öryggisblað: KJÖRVARI 14
-
KJÖRVARI 12 – PALLAOLÍA
KJÖRVARI 12 er olíubundin viðarvörn, sem smýgur vel inn í viðinn, veitir honum góða vatnsvörn og hamlar gegn sprungumyndun. KJÖRVARI 12 er einkum ætlaður á gagnvarinn við utanhúss t.d. á palla, skjólveggi o.fl. Bestur verður árangurinn ef viðurinn er varinn algjörlega óveðraður.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 12 Pallaolía
Sjá öryggisblað: Kjörvari 12 – Pallaolía