KJÖRVARI 14
KJÖRVARI 14 er gagnsæ viðarvörn, gerð úr vatnsheldum alkýðolíum, öflugum fúa- og rotvarnarefnum og ljósheldum litarefnum. KJÖRVARI 14 er þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega í gegnum sig. KJÖRVARI 14 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist. Kjörvaraborinn viður hefur ekki áhrif á nærliggjandi gróður og hentar því vel t.d. á tréverk gróðurhúsa.
Sjá vörulýsingu: KJÖRVARI 14
Sjá öryggisblað: KJÖRVARI 14
Related products
-
KJÖRVARI 22 Pallaolía
Í KJÖRVARA 22 eru öflug rotvarnarefni og mjög ljósheld litarefni bundin vatnsheldum alkýðolíum. KJÖRVARI 22 er þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og veitir góða vörn gegn veðrun. KJÖRVARI 22 er gagnsæ viðarvörn einkum ætluð á gagnvarinn við utanhúss, t.d. palla, skjólveggi o.fl.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 22
Sjá öryggisblað: Kjörvari 22 -
PALLAHREINSIR
VIÐAR PALLAHREINSIR fjarlægir gamla pallaolíu, fitu og önnur óhreinindi. VIÐAR PALLAHREINSIR er vatnsþynnt lútarkennt hreinsiefni sem leysir upp gamla pallaolíu og nýtist vel ef lagfæra á flekkóttan pall eða til að skipta um lit.
Sjá vörulýsingu: PALLAHREINSIR
Sjá öryggisblað: PALLAHREINSIR