KJÖRVARI 12 – PALLAOLÍA
KJÖRVARI 12 er olíubundin viðarvörn, sem smýgur vel inn í viðinn, veitir honum góða vatnsvörn og hamlar gegn sprungumyndun. KJÖRVARI 12 er einkum ætlaður á gagnvarinn við utanhúss t.d. á palla, skjólveggi o.fl. Bestur verður árangurinn ef viðurinn er varinn algjörlega óveðraður.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 12 Pallaolía
Sjá öryggisblað: Kjörvari 12 – Pallaolía
Related products
-
PALLAHREINSIR
VIÐAR PALLAHREINSIR fjarlægir gamla pallaolíu, fitu og önnur óhreinindi. VIÐAR PALLAHREINSIR er vatnsþynnt lútarkennt hreinsiefni sem leysir upp gamla pallaolíu og nýtist vel ef lagfæra á flekkóttan pall eða til að skipta um lit.
Sjá vörulýsingu: PALLAHREINSIR
Sjá öryggisblað: PALLAHREINSIR -
KJÖRVARI 24
KJÖRVARI 24 er vatnsþynnt, þunnfljótandi alkýðbundin viðarvörn með öflugum rotvarnarefnum og litarefnum sem verja viðinn vel gegn niðurbroti af völdum sólarljóssins en hylja ekki viðaræðarnar, heldur framkalla og skýra þær. KJÖRVARI 24 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 24
Sjá öryggisblað: Kjörvari 24