KJÖRVARI 14
KJÖRVARI 14 er gagnsæ viðarvörn, gerð úr vatnsheldum alkýðolíum, öflugum fúa- og rotvarnarefnum og ljósheldum litarefnum. KJÖRVARI 14 er þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega í gegnum sig. KJÖRVARI 14 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist. Kjörvaraborinn viður hefur ekki áhrif á nærliggjandi gróður og hentar því vel t.d. á tréverk gróðurhúsa.
Sjá vörulýsingu: KJÖRVARI 14
Sjá öryggisblað: KJÖRVARI 14
Related products
-
PALLAHREINSIR
VIÐAR PALLAHREINSIR fjarlægir gamla pallaolíu, fitu og önnur óhreinindi. VIÐAR PALLAHREINSIR er vatnsþynnt lútarkennt hreinsiefni sem leysir upp gamla pallaolíu og nýtist vel ef lagfæra á flekkóttan pall eða til að skipta um lit.
Sjá vörulýsingu: PALLAHREINSIR
Sjá öryggisblað: PALLAHREINSIR -
KJÖRVARI 24
KJÖRVARI 24 er vatnsþynnt, þunnfljótandi alkýðbundin viðarvörn með öflugum rotvarnarefnum og litarefnum sem verja viðinn vel gegn niðurbroti af völdum sólarljóssins en hylja ekki viðaræðarnar, heldur framkalla og skýra þær. KJÖRVARI 24 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist. Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 24
Sjá öryggisblað: Kjörvari 24 -
KJÖRVARI 15 Tix
KJÖRVARA 15 svipar til KJÖRVARA 14 en hefur „tixótrópíst“ flæði, hann slettast síður úr penslinum og auðveldar að mála upp fyrir sig. KJÖRVARI 15 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 15
Sjá öryggisblað: Kjörvari 15