KÓPAL 25
KÓPAL 25 er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning, sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eðaformaldehýð. KÓPAL 25 hylur sérlega vel og hefur mikla þvottheldni. KÓPAL 25 er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL 25 er sérlega hentug á ganga, stofur, svefnherbergi o.fl. þar sem óskað er eilítið hærri gljáa en það sem algengast er notað.
KÓPAL INNIMÁLNING er til með mismunandi glástigum og er viðurkennd umhverfisvæn málning vottuð með Svansmerkinu.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL 25
Sjá öryggisblað: KÓPAL 25
Related products
-
AKRÝLLAKK 03
AKRÝLLAKK 03 er vatnsþynnt mött akrýllakkmálning.
AKRÝLLAKK 03 er sérlega ætlað á sjónsteypu innanhúss þar sem kröfur eru gerðar til að áferð steinsins haldist sem mest í óbreyttri mynd. Lakkið hentar einnig utandyra eftir meðhöndlun með vatnsfælu.
AKRÝLLAKK 03 er fremur þunnfljótandi og hentar vel þar sem ekki er óskað eftir mikilli fyllingu á fletinum. Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.Sjá vörulýsingu: AKRÝLLAKK 03
Sjá öryggisblað: AKRÝLLAKK 03 -
KÓPAL 4
KÓPAL 4 er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL 4 hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun. KÓPAL 4 er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
KÓPAL INNIMÁLNING er til með mismunandi glástigum og er viðurkennd umhverfisvæn málning vottuð með Svansmerkinu.
-
KÓPAL PERLULAKK 40/80
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu. KÓPAL PERLULAKK er ætlað til notkunar innanhúss á glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar eða gljáandi áferðar er óskað. Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLULAKK 40/80
Sjá öryggisblað: KÓPAL PERLULAKK 40/80