KÓPAL AKRÝLHÚÐ – Gljástig 25, 60
KÓPAL AKRÝLHÚÐ er vatnsþynnt akrýlmálning, með mikla þvottheldni og hylur sérlega vel. KÓPAL AKRÝLHÚÐ er gerlavarin, þolir vel rakaálag og hefur mjög góða viðloðun. KÓPAL AKRÝLHÚÐ er einkum ætluð á veggi í frystihúsum, víða í matvælaiðnaði og annarsstaðar þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ er til með mismunandi glástigum og er viðurkennd umhverfisvæn málning vottuð með Svansmerkinu.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Sjá öryggisblað: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Related products
-
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er vatnsþynnt mött akrýlmálning. Málningin inniheldur mygluvarnarefni sem ver málningarfilmuna.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er einkum ætluð til málunar á loftum og veggjum innanhúss. Hentar sérstaklega vel þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar t.d. í eldhúsi, þvottahúsi og í léttum iðnaði.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er létt í notkun hylur vel, hefur einstaklega góða þvottheldni og gefur mjög fallega áferð.
Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Sjá öryggisblað: KÓPAL AKRÝLHÚÐ -
KÓPAL PERLULAKK 40/80
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu. KÓPAL PERLULAKK er ætlað til notkunar innanhúss á glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar eða gljáandi áferðar er óskað.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLULAKK 40/80
-
KÓPAL FYLLIGRUNNUR
KÓPAL FYLLIGRUNNUR er vatnsþynnt, lyktarlaus grunnmálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL FYLLIGRUNNUR er með hátt þurrefni og fyllir mjög vel.
KÓPAL FYLLIGRUNNUR er viðurkennd umhverfisvæn grunnmálning vottuð með Svansmerkinu.
Sjá vörulýsingu: KOPAL FYLLIGRUNNUR
Sjá öryggisblað: KÓPAL FYLLIGRUNNUR