Showing 1–12 of 16 results
-
KÓPAL GRANÍTLAKK
KÓPAL GRANÍTLAKK er slitsterk vatnsþynnanleg málning úr sérvalinni blöndu af Akrýl og Polýúretan bindiefnum sem gulna ekki. Það er auðvelt að bera málninguna á, hún flýtur vel, þornar fljótt og gefur fallegt útlit. Er einkum ætluð á gólf og stiga á heimilum, í geymslum, tæknirýmum, atvinnuhúsnæði og víðar þar sem slitálag er ekki mjög mikið.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL GRANÍTLAKK
Sjá öryggisblað: KÓPAL GRANÍTLAKK
-
STEINGRUNNUR
STEINGRUNNUR er vatnsþynnanlegur bindigrunnur gerður úr sérstöku akrýlbindiefni, sem smýgur vel og bindur laust yfirborð. Er einkum ætlaður til að grunna múr og steinsteypu utanhúss undir STEINTEX eða STEINSKJÓL þar sem nokkur duftsmitun er til staðar. Það má einnig nota hann til að grunna undir STEINÞYKKNI.
Sjá vörulýsingu: STEINGRUNNUR
Sjá öryggisblað: STEINGRUNNUR -
VATNSVARI V
VATNSVARI V er vatnsþynnanleg vatnsfæla, byggð á sílani, sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík byggingarefni. VATNSVARI V er seldur sem þykkni og er að jafnaði þynntur rétt fyrir notkun.
VATNSVARI V er einfaldur í notkun og minnkar losun á lífrænum leysum samanborið við hefðbundnar vatnsfælur.
Sjá vörulýsingu: VATNSVARI V
Sjá öryggisblað: VATNSVARI V -
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er vatnsþynnt mött akrýlmálning. Málningin inniheldur mygluvarnarefni sem ver málningarfilmuna.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er einkum ætluð til málunar á loftum og veggjum innanhúss. Hentar sérstaklega vel þar sem mikið raka- og þvottaálag er til staðar t.d. í eldhúsi, þvottahúsi og í léttum iðnaði.
KÓPAL AKRÝLHÚÐ 7 er létt í notkun hylur vel, hefur einstaklega góða þvottheldni og gefur mjög fallega áferð.
Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.Sjá vörulýsingu: KÓPAL AKRÝLHÚÐ
Sjá öryggisblað: KÓPAL AKRÝLHÚÐ -
KÓPAL PERLULAKK 40/80
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu. KÓPAL PERLULAKK er ætlað til notkunar innanhúss á glugga, hurðir, karma, húsgögn o.fl., þar sem silkimattrar eða gljáandi áferðar er óskað.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL PERLULAKK 40/80
Sjá öryggisblað: KÓPAL PERLULAKK 40/80 -
KÓPAL LEIFTURLAKK
KÓPAL LEIFTURLAKK er glært, vatnsþynnanlegt, lyktarlaust akrýllakk án mengunar af lífrænum leysiefnum. KÓPAL LEIFTURLAKK flýtur vel og myndar lakkfilmu sem gulnar ekki. Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL LEIFTURLAKK
Sjá öryggisblað: KÓPAL LEIFTURLAKK
-
KJÖRVARI 24
KJÖRVARI 24 er vatnsþynnt, þunnfljótandi alkýðbundin viðarvörn með öflugum rotvarnarefnum og litarefnum sem verja viðinn vel gegn niðurbroti af völdum sólarljóssins en hylja ekki viðaræðarnar, heldur framkalla og skýra þær. KJÖRVARI 24 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist.
Sjá vörulýsingu: Kjörvari 24
Sjá öryggisblað: Kjörvari 24
-
AKRÝL ÞOL
Akrýl – ÞOL er vatnsþynnt, hálfgljáandi akrýlmálning, sem er létt í notkun. Akrýl – ÞOL myndar filmu með mjög gott veðrunarþol og gljáheldni. Akrýl – ÞOL er einkum ætlað á bárujárn, ýmsar gerðir af klæðningum og aðra málmfleti utanhúss, þar sem mikið mæðir á og óskað er hálfgljáandi áferðar. Ekki mælt með á þök sem hafa minna en 15-20° halla. Heimilt er að nota vöruna í Svansvottuð hús.
Sjá vörulýsingu: AKRÝL – ÞOL
Sjá öryggisblað: AKRÝL – ÞOL
-
AKRÝLLAKK 03
AKRÝLLAKK 03 er vatnsþynnt mött akrýllakkmálning.
AKRÝLLAKK 03 er sérlega ætlað á sjónsteypu innanhúss þar sem kröfur eru gerðar til að áferð steinsins haldist sem mest í óbreyttri mynd. Lakkið hentar einnig utandyra eftir meðhöndlun með vatnsfælu.
AKRÝLLAKK 03 er fremur þunnfljótandi og hentar vel þar sem ekki er óskað eftir mikilli fyllingu á fletinum.Sjá vörulýsingu: AKRÝLLAKK 03
Sjá öryggisblað: AKRÝLLAKK 03 -
KÓPAL GRUNNAL
KÓPAL GRUNNAL er mött, vatnsþynnanleg, akrýlbundin grunnmálning án mengunar af leysiefnum. KÓPAL GRUNNAL hefur góða viðloðun við flest byggingarefni og inniheldur efni sem hindra blæðingu á t.d. kaffi, nikótíntjöru, ryði o.fl. í gegnum málningarfilmuna.
Sjá vörulýsingu: KÓPAL GRUNNAL
Sjá öryggisblað: KÓPAL GRUNNAL
- 1
- 2